Register
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
Location

Könnun

Hvernig líkar þér síðan ?
 
Bobber (12).jpg

Næst á dagskrá !

Umræðan

Meira...


Swap meet 11 September Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Föstudagur, 03. september 2010 15:33

Swap meet verður haldið Laugardaginn 11 september og eru þeir sem ætla að vera með eitthvað til sölu beðnir að setja sig í samband við Jómba í síma 820-1104.  Að þessu sinni verðum við að Vagnhöfða 9, 110 Reykjavík. (sama gata og Bílabúð benna)
Nú er um að gera að safna saman öllu því sem þú þarft ekki að eiga og tengist á einhvern hátt hjólamenninguni, t.d varahlutir, aukahlutir, fatnaður og gallar. það eru alveg ótrúlegustu hlutir sem seljast á svona samkomum. þó þú eigir ekki mikið skaltu samt koma með það og vera með í gleðinni.  þeir sem ætla að selja eitthvað eiga að mæta kl 10 um morgunin og setja upp borð og græja sína aðstöðu, svo verður opið frá 12-16.  Stjórn H-DCICE.

 
Fundur 31.08.10 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Miðvikudagur, 01. september 2010 12:44

Nokkrar myndir frá fundinum í gær.

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. september 2010 12:46
 
Custom bike show Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Mánudagur, 23. ágúst 2010 14:39

Custom bike show sýningin á menningarnótt var alveg einstaklega vel heppnuð.
Stjórn klúbbsins vill koma á framfæri þakklæti til Spessa og Sigga Porter, en þeir sáu algerlega um skipulagninguna.
Fallegasta hjólið var kosið á menningarnótt og var það Sævar sem hreppti verðlaunin sem að þessu sinni var tattoo í boði Fjölnis sem rekur Íslensku húðflúrstofuna á Hverfisgötu.

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 23. ágúst 2010 14:50
 
Ritstjóraskipti Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Sunnudagur, 01. ágúst 2010 23:24

30 júlí

Ritsjórinn okkar hann Spessi sá sig knúinn til að snúa sér að öðrum verkum.

Egill okkar maður nr. #137 gaf kost á sér til að veita blaðinu forstöðu sem ritsjóri þar til annar gæfi kost á sér til verksins sem er frábært..

Þá halda aðrir áfram sem voru fyrir við störf sín fyrir blaðið, sem er vel.

Áfram verður okkar frábæra blað gefið út öllum til mikillar ánægju.

 
Breyting í stjórn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Sunnudagur, 01. ágúst 2010 23:20

27 júlí

Breytingar hafa orðið í stjórn okkar ágæta félags.

Rabbi sá sig knúinn til að hætta sem forseti klúbbsins,  og hefur varamaðurinn Kobbi shæní #12 verið kvaddur til af fyrri stjórn til setu formanns í hans stað.

Mikið af jákvæðum hlutum eru að gerast hjá félaginu.

 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 01. ágúst 2010 23:21
 
Nýr fundarstaður PORTIÐ Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Mánudagur, 26. apríl 2010 16:15

Sælir félagar.
Ákveðið hefur verið að skipta um fundarstað og í stað þess að hittast á Súfistanum höfum við ákveðið að hittast á Portinu, Kaffi og veitingarhúsi í Kringlunni. Þetta er bakatil í Kringlunni á sama stað og Hard Rock Café var(sjá mynd).  Fundir eru alla þriðjudaga í sumar(Júní-Júli-Ágúst). Portið bíður okkur velkomna á staðinn og ætla að vera með tilboð á veitingum fyrir okkur.  Þarna getum við hist fyrir hjólatúra og fengið okkur eitthvað í svangin áður en lagt er af stað, því í sumar verður stefnt á að hafa ákveðin tíma hvenær lagt er af stað af fundi og fara í góða túra á þriðjudagskvöldum.  ALLIR AÐ MÆTA......

Síðast uppfært: Föstudagur, 07. maí 2010 15:54
 
Borgarhjól - Fatnaður frá H-DCICE Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Mánudagur, 21. desember 2009 13:53

Við hjá H-DCICE höfum samið við Borgarhjól um sölu á fatnaði fyrir klúbbinn.

Eins og allir félagsmenn vita þá er James #92 með verslunina og verkstæðið Borgarhjól, Hverfisgötu 50. 
Hann hefur boðist til að sjá um sölu á fatnaði fyrir klúbbinn og var því vel tekið.
Við teljum að með þessu munum við ná aukinni sölu á fatnaði og það verður auðveldara fyrir félaga að nálgast þetta.
Það kom berlega í ljós á menningarnótt að það voru fyrst og fremst túristar sem keyptu fatnað af okkur þannig að með því að hafa þetta á túristaslóðum, en ekki lokað inn í einhverjum bílskúr, komum við til með að ná aukinni sölu. 
Auk þess að selja boli fyrir Harley klúbbinn þá er Borgarhjól með mikið og gott úrval af mótorhjólagöllum og hjálmum fyrir okkur að ógleymdum frábærum stígvélum sem voru að koma í hús. James rekur einnig pöntunarþjónustu og útvegar varahluti hratt og á góðum verðum. Eitthvað að varahlutum er einnig til á lager. 
Skór leður Buxur og Jakkar frá Xelement(USA)
Hjálmar frá Takachi/Nitro (Japan)
Frank Thomas Gore-tex fatnaður (UK)
Hanskar, Skálmar og Vesti frá USA
Borgarhjól,  Hverfisgötu 50,  101 Reykjavík.  S: 551-5653  GSM: 863-5456.

Síðast uppfært: Föstudagur, 07. maí 2010 15:53
 
Fundartími Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kristján Sigurðsson   
Þriðjudagur, 08. september 2009 22:42

Athugið breyttan fundartíma. Í September-Maí eru fundir einu sinni í mánuði í Húsnæði Óskabarna Óðins, Kaplahrauni 18.

Fundirnir eru fyrsta þriðjudag í mánuði klukkan 20:00.